|
Líkamsmeðferðin:
Líkamslögun er nuddstofa sem sérhæfir sig í sogæðanuddi. Við notum svokallaða Endermologie aðferð með tæki sem heitir LPG Cellu M6. Meðferðin felst í því að auka súrefnisflæði í húðinni og koma blóðflæðinu af stað sem hjálpar til við að losa um hnúta og stíflur sem orsakast af slæmu mataræði og hormónabreytingum. Tækið vinnur vel á appelsínuhúð (Cellulite) og húðin verður stinn og heilbrigð. Meðferðin líkist helst djúpu nuddi.
Endermologie meðferðin hefur hlotið náð hjá bandaríska lyfjaeftirlitinu (F.D.A) sem áhrifaríkasta meðferðin við appe lsínuhúð, hrukkum og misfellum í húðinni.
Endermologie tæknin hefur verið notuð í yfir 20 ár og yfir 95.000 meðferðir eru gerðar daglega um allan heim. Það eru þó sumir sem ekki mega hljóta svona meðferð. Ófrískar konur/með barn á brjósti, fólk á blóðþynningarlyfjum, blóðrásarsjúklingar/æðakerfissjúklingar, krabbameinssjúklingar, alnæmissjúklingar. Ef þú ert með einhvern sjúkdóm skaltu hafa samband við lækni áður en þú þiggur meðferð. Hvað er appelsínuhúð?
Appelsínuhúð (cellulite) er sérstök doppótt áferð á húðinni sem minnir á appelsínubörk. Það sem veldur þessari áferð er uppsöfnun af fitu og úrgangsefnum í undirlagi húðarinnar. Þar er um að ræða afbrigði af fituvef sem ásamt bandvef myndar bylgjur. Um það bil 90% af kynþroska konum eru með appelsínuhúð. Það er engin töfralausn til en Endermologie, fræðin á bak við þetta tiltekna sogæðanudd, er eina meðferðin sem hefur hlotið náð hjá F.D.A. bandaríska lyfjaeftirlitinu. Góð hreyfing, hollt mataræði og VATN - allt þetta eru grundvallaratriði og nauðsynleg til að halda heilbrigðum lífstíl en samt sem áður þá eru oft svæði á líkamanum sem veita mótstöðu við því sem þú tekur á í ræktinni og með mataræði. Á þessum svæðum (t.d. hliðarspik, bringa, hné, innanverð læri.. o.fl.) nær sogæðanuddið (lipomassage) góðum árangri. Þegar allt kemur til alls þá nær maður besta árangrinum með því að stunda líkamsrækt, borða rétt og drekka a.m.k 2l af vatni á dag. Með þessari meðferð er hægt að flýta fyrir árangri og koma í veg fyrir appelsínuhúð. Ekki bara fyrir konur!
Karlmenn njóta einnig góðs af meðferðinni. Staðbundin fita, hliðarspik o.fl. geta verið atriði sem angra karlmenn. Þrátt fyrir að hafa góð efnaskipti í líkamanum, hreyfa sig reglulega og borða hollan mat þá eiga karlmenn það til að safna að sér fitu á ákveðnum svæðum sem erfitt er að eiga við.
______________________________________________________________
Andlitsmeðferðin:
Eftir því sem við verðum eldri fara þunnu bandvefirnir í andlitinu, hálsinum og á bringunni að hraka, sama hvaða kyn við erum eða hversu góða húðgerð við höfum. Þrátt fyrir hollt mataræði, góða sólarvörn og hreyfingu þá mun húðin byrja að linast og mynda hrukkur. Til að hjálpa húðinni að halda sér unglegri hefur LPG útbúið tæki sem örvar, styrkir og sléttir húðina.
Tækið vinnur líkt og Cellu M6 tækið með sogi. Það örvar collagen í andlitinu og kemur jafnvægi á húðina. Vinnur vel á hrukkum, fínum línum og baugum. Meðferðin er mjög slakandi og þægileg.
Hvað er collagen?
Kollagen (collagen) er protein sem líkaminn framleiðir. Það safnast saman í leðurhúðinni og húðbeðnum, sem eru tvö neðri lög húðarinnar. Kollagen er nauðsynlegt protein sem hjálpar húðinni að viðhalda slitþoli og teygjanleika. Ef kollagenmyndun minnkar (t.d. vegna mikils sólbaðs, mengunar) verður húðin lausari og hrukkur byrja að myndast. Þegar allt kemur til alls þá nær maður besta árangrinum með því að stunda líkamsrækt, borða rétt og drekka a.m.k 2l af vatni á dag. Með þessari meðferð er hægt að flýta fyrir árangri og koma í veg fyrir hrukkumyndun. Ekki bara fyrir konur!
Karlmenn njóta einnig góðs af meðferðinni.
|